Færsluflokkur: Íþróttir
25.4.2008 | 23:11
Frítt á leikinn: Haukar-Afturelding
Á morgun laugardag koma Aftureldingsmenn í heimsókn að Ásvelli. Þetta verður okkar síðasti heimaleikur í vetur og þar sem við erum búnir að tryggja okkur Íslandsmeistaratitilinn þá fáum við Bikarinn afhentan í leikslok. Við ætlum okkur sigur í þessum leik því það er ekkert fútt í því að fá Íslandsbikarinn afhentan í tapleik. Mikið fjör verður á þessum leik og frítt er inn fyrir alla sem vettlinga geta valdið. Allir helstu styrktaraðilar Hauka bjóða á þennan leik. Hvetjum alla haukamenn til að mæta og styðja Íslandsmeistarana til sigurs. Leikurinn hefst kl.14:15.
Þessi leikur verður einnig síðasti leikurinn hans Dóra Ingólfs og einnig er þetta leikur
númer 1000 hjá honum Herði Davíð liðstjóra okkar allra Haukamanna. Mætum í rauðu og gerum okkur glaðan dag að Ásvöllum.
Áfram Haukar
Í kvöld verður svo gleði fram á rauða nótt.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2008 | 20:01
6 Íslandsmeistaratitlar á 8 árum.
Tekið af heimasíðu hauka. www.haukar.is
Í dag, fimmtudaginn 24. apríl 2008, eru liðin 8 ár síðan Haukar fögnuðu Íslandsmeistaratitli á Strandgötunni eftir 57 ára bið eftir titlinum. Það var annar Íslandsmeistaratitill félagsins í meistaraflokki karla en síðan þá hefur liðið sigrað Íslandsmeistaratitilinn 5 sinnum til viðbótar og eru því Íslandsmeistaratitlarnir orðnir 7 samtals, þar af 6 á síðustu 8 árum.
Á laugardaginn leika strákarnir gegn liði Aftureldingar og eftir þann leik taka strákarnir við Íslandsmeistarabikarnum sem þeir tryggðu sér með sigri á Fram þann 11. apríl s.l.
Fyrsti Íslandsmeistaratitill Hauka kom árið 1943. Eftir það þurftum við Haukamenn að bíða í 57 ár en strákarnir okkar urðu fyrstu Íslandsmeistarar 21. aldarinnar með því að sigra Fram í fjórða úrslitaleik Íslandsmótsins 24. apríl 2000, sem var annar dagur páska það árið. Það var Guðmundur Karlsson sem var þjálfari Hauka þetta árið en hann hætti þjálfun liðsins eftir tímabilið og tók VIggó Sigurðsson við liðinu.
Viggó stjórnaði liðinu frá árinu 2000 þar til í janúar 2004. Á þeim tíma urðu strákarnir tvisvar sinnum Íslandsmeistarar. Þeir sigruðu KA í einni mögnuðustu úrslitarimmu fyrr og síðar árið 2001. KA menn sigruðu tvo fyrstu heimaleiki sína og okkar menn þá tvo heimaleiki sem við áttum. Þar sem KA hafnaði ofar í deildinni var oddaleikurinn á þeirra heimavelli þann 5. maí 2001. Þann leik sigruðu strákarnir okkar en þetta var einn af mögnuðustu úrslitaleikjum í manna minnum.
Árið eftir, 2002, kom ekki Íslandsmeistaratitill í hús á Ásvöllum. Þá sigrði KA Val í úrslitaviðureigninni eftir að hafa slegið okkar menn út í undanúrslitum.
Árið 2003 kom þriðji Íslandsmeistaratitill aldarinnar í hús á Ásvöllum. Þá voru það ÍRingar sem biðu lægri hlut gegn okkar mönnum, 3-1. Okkar strákar unnu fyrsta leikinn, sem fram fór á Ásvöllum, ÍRingar sigruðu svo annan leikinn, sem fram fór í Austurbergi. Síðustu tvo leiki viðureignarinnar sigruðu Haukamenn, fyrst á Ásvöllum og svo í Austurbergi þar sem Íslandsmeistarabikarinn fór á loft.
Í janúar 2004 lét Viggó Sigurðsson af störfum sem þjálfari liðsins og tók Páll Ólafsson, sem hafði verið aðstoðarmaður Viggós, við liðinu. Undir stjórn Palla urðu strákarnir Íslandsmeistarar 2004 og 2005. Árið 2004 sigruðu strákarnir okkar Val í úrslitaviðureigninni. Þeir komust í úrslitaviðureignina með því að sigra KA í undanúrslitum, unnu fyrsta leikinn, töpuðu öðrum og unnu svo oddaleikinn. Í úrslitaviðureigninni var hins vega aldrei spurning um hvort bræðrafélaganna yrði Íslandsmeistari því strákarnir okkar tóku þetta létt og sigruðu 3-0. Þetta var í fyrsta sinn til margra ára sem úrslitaviðureign fór 3-0.
Árið eftir var sama sagan upp á teningnum. Strákarnir byrjuðu á því að sigra FH 2-0 í 8 liða úrslitum. Í undanúrslitum sigruðu þeir svo Valsmenn 2-0 og í úrslitaviðureigninni mættu þeir ÍBV og sigruðu þá 3-0. 11 sigurleikir í úrslitakeppninni í röð því staðreynd, árangur sem seint verður sleginn.
Árin 2006 og 2007 kom ekki Íslandsmeistaratitill karla í hús á Ásvöllum. Árið 2006 var fyrirkomulagi Íslandsmótsins breytt og ekki leikin úrslitakeppni eins og gert hafði verið til fjölda ára. Í stað þess varð það lið sem efst var í deildarkeppni að loknu tímabili Íslandsmeistari. Árið 2006 var það Fram sem hafnaði í efsta sæti en okkar strákar í öðru sæti. Liðin voru jöfn að stigum en Fram hafði betur í innbirðisviðureignum. Árið 2007 var það Valur sem fagnaði Íslandsmeistaratitli. Það var vel við hæfi að þeir fögnuðu sigrinum á Ásvöllum eftir síðasta leik deildarinnar.
Í ár, 2008, kemur bikarinn aftur heim á Ásvelli. Strákarnir sigruðu Fram, 41-30, þann 11. apríl síðastliðin og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn. Það er Aron Kristjánsson sem er þjálfari liðsins nú.
Á þessum fyrstu átta árum 21. aldarinnar hafa strákarnir okkar því fagnað 6 af 9 Íslandsmeistaratitlum aldarinnar. Þetta er árangur sem erfitt er að toppa.
Strákarnir taka á móti bikarnum á Ásvöllum eftir leik sinn gegn Afturelding á laugardaginn. Leikurinn hefst klukkan 14:15. Að sjálfsögðu ætlum við Haukamenn að fjölmenna á leikinn og fagna eins og sönnum Haukamönnum sæmir.
HAUKAR ERU, HAFA ALLTAF VERIÐ OG MUNU ALLTAF VERA BESTIR!!!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2008 | 15:02
Bikarafhending á laugardaginn
Þá er það loksins komið á hreint að leikurinn þar sem við fáum afhentan Íslandsbikarinn verður á laugardeginum kl.14:15 en ekki á sunnudeginum eins og áður hefur verið auglýst. Það er aðeins betra að fagna titlinum á laugardegi en á sunnudegi. Núna t.d. þarf ég ekki að boða forföll í vinnuna á mánudeginum. :-) Semsagt bikargleði að Ásvöllu á laugardaginn næsta.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2008 | 11:53
Fjöldi leikja með meistaraflokki
Tók saman hvað menn eru búnir að spila marga leiki með Haukunum í meistaraflokki. Það vantar reyndar inn í þessa tölur bikarleiki frá árinu 1999 til 2003. Og svo vantar alveg árið 1998. HSÍ er ekki að standa sig í þessum málum og það er vonandi að þetta lagist fljótlega. Ef þið spiluðu árið 1998 þá getið þið bætt inn svona um 25-30 leikjum. Svo nær þetta kerfi hjá HSÍ bara aftur til 1995 þannig að ég kemst ekki lengra en það. Tók bara leikmenn sem eru að spila núna hjá Haukunum. Reyndar er þetta bara deild, deildarbikar og stundum bikarkeppni. Það vantar Evrópukeppnina inn í þetta ásamt meistarar meistaranna. Þannig að um leið og HSÍ uppfærir vefinn sinn þá er hægt að fullmóta þennan lista.
Þetta er semsagt frá árinu 1995 til 2008 mínus árið 1998.
Jón Karl - 303
Halldór - 300 - Það vantar árin 1991 til 1994 ásamt 1998 inn hjá Dóra. Hann er komin eitthvað yfir 400 og örugglega nálægt 500 leikjum fyrir Hauka.
Magnús S - 203
Andri Stefan - 218
Gísli Jón - 144
Freyr - 113
Kári - 86
Pétur P - 32
Arnar P - 89
Elías - 14
Beggi - 81
Gísli G - 28
Gunnar Berg - 33
Þröstur - 31
Arnar Jón - 23
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2008 | 23:11
Stig er stig
Það var hörkuleikur sem fram fór í Mýrinni í kvöld þegar við haukamenn kíktum í heimsókn. Í byrjun var jafnt á öllum tölum en svo náðum við yfirhöndinni og komust í 13-9 en þá duttu Stjörnumenn í gírinn og skoruðu 6 mörk á móti 1 okkar og staðan orðin 15-14 þeim í vil. Í hálfleik var svo staðan 15-15. Í seinnihálfleik var sama baráttan til staðar og um miðjan seinnihálfleik náðum við 4 marka forustu 22-26 en því miður þá gáfum við eftir og vorum að slútta lélegum skotum og þeir komust inn í
leikinn aftur. Við fengum svo víti sem hefði komið okkur yfir en Roland varði það og Stjörnumenn fengu síðustu sóknina í leiknum sem þeir náðu ekki að nýta sér. 1 stig því staðreynd og 11 leikurinn í röð sem er án taps í deildinni.
Næsti leikur er eftir 10 daga og þá koma Aftureldingsmenn í heimsókn en í þessum leik fáum við afhentan Bikarinn góða og því verður húllum hæ að Ásvöllum. Við ætlum okkur sigur í þessum leik og ekkert annað. Nánar um það síðar.
Markaskor í leiknum: Freyr 6, Gísli 6.
P.s vert er að geta þess að hann Heimir Óli tók þátt í sýnum fyrsta meistaraflokksleik í kvöld og var honum fagnað að handboltasiði inn í klefa á eftir. :) Óskum honum og einnig Tjörva sem spilaði sinn fyrsta leik gegn Akureyri til hamingju með að vera komnir í fullorðins bolta.
![]() |
Stjarnan og Haukar skildu jöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2008 | 22:09
Enn einn sigurinn
Sigur vannst í kvöld gegn liði Akureyrar. Leikurinn var nokkuð sveiflu kenndur en við vorum alveg með þá í vasanum í fyrrihálfleik og leiddum 17-9. Það spiluðu og liðið rúllaði vel. Í seinnihálfleik byrjuðum við vel og komust í 9 marka forskot. Svo var eins og að við værum eitthvað að drífa okkur og fórum að taka óvönduð skot og skjóta eftir 10 sek sókn. Akureyrir komst hægt og sígandi inn í leikinn og fengu tækifæri til að jafna leikinn í stöðunni 28-27 fyrir okkur en þeir misstu boltann og við kláruðu síðustu sóknina með marki en síðasta sóknin var mjög glæsileg og minnti helst á Harlem Globetrottes þar sem við tókum flotta syrpu í klippingum sem endaði svo með sendingu inn á línuna og úr varð mark. Markahæstu menn voru Gísli Jón með 7, Freyr með 5 og Andri 4.
Næsti leikur er gegn Stjörnunni í Mýrinni á fimmtudaginn. Allir Haukamenn að mæta í rauðu og styðja Íslandsmeistarana til sigurs.
![]() |
Haukar lögðu Akureyringa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2008 | 11:10
Haukar - Akureyri í kvöld kl.19:15
Það er skrítið að mæta í leik og Íslandsmeistaratitilinn komin í höfn. En við erum staðráðnir í að vinna alla leiki sem við spilum og þessi leikur er næstur á dagskrá. Akureyri eru með hörkulið sem geta unnið öll lið. Við unnum þá í fyrsta leiknum fyrir norðan en svo höfum við gert tvö jafntefli. Við erum reyndar ekki með okkar sterkasta lið í kvöld þar sem Beggi er brotinn á fæti og Arnar P verður hvíldur vegna smávægilegra meiðsla. Einnig verður Maggi Sigmund frá og Aron Rafn kemur inn í staðinn fyrir hann í markið. Inn í liðið koma tveir ungir og efnilegir en þeir heita Tjörvi og Tóti. Aðrir eru klárir og tilbúnir að gefa sig í þetta verkefni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2008 | 00:15
ÍSLANDSMEISTARAR
Það voru Framarar sem voru flengdir í kvöld og um leið Íslandsmeistaratitilinn tryggður. Þessi sigur okkar var aldrei í hættu og náðum við fljótlega góðu forskoti og í hálfleik var staðan 17-12 okkur í vil. Í seinnihálfleik náður þeir aðeins að komast inn í leikinn þegar við vorum tveimur færri. Náðu að minnka muninn i 4 mörk en svo ekki söguna meir. 11 marka sigur staðreynd eða 41-30. Hornamennirnir í liðinu skoruðu meira en helming marka liðsins. Elli var með 11, Freyr 7, Þröstur 2 og Jón Karl 1. Frábær sigur og nú er bara að klára mótið með stæl.
Ég ætla að seta inn myndband sem ég bjó til og sýndi strákunum á videofundinum í gær. Smá pepp video. Gerði það líka fyrir Valsleikinn en það er ekki hægt að sýna hér vegna mikils ofbeldis, en það er hægt að nálgast það á youtube.com.
P.s. Óskar Bjarni, þú verður að afsaka en ég varð að troða þér inn í þetta myndband þar sem það virðist kveikja í nokkrum í liðinu þegar þú kemur með einhverjar yfirlýsingar. Sem sagt strákar, Óskar Bjarni sagði aldrei að Fram myndi vinna. ;)
En hér kemur videoið.
![]() |
Haukar Íslandsmeistarar í 7. sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.4.2008 | 10:34
Haukar - Fram í kvöld kl.19:15
Þá er komið að enn einum stórleiknum að Ásvöllum. "Deildarbikarmeistarnir" mæta í heimasókn til okkar Haukamanna. Þetta verður án efa hörkuleikur og því mikilvægt að fólk mæti og styðji okkur til sigurs. Ekki skemmir að með sigri í kvöld verðum við Íslandsmeistara og því enn meiri ástæða að mæta að Ásvelli og þá helst í rauðu. Fram vann síðasta leik sinn gegn Akureyri og við sigruðum ÍBV í eyjum. Það eru allir heilir hjá okkur og tilbúnir í slaginn. Hjá Fram eru flestir klárir að ég held og því ekkert til fyrirstöðu en að um góðan leik verða að ræða hjá tveimur góðum liðum.
Áfram Haukar
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.4.2008 | 10:25
Haukalagið
Nú er nýja haukalagið komið í verslanir N1 í Hafnafirði og er þetta klárlega lag sem allir Haukamenn þurfa að eiga á lager. Frábært lag þar á ferðinni (Haukar, Haukar)
Páll Rósinkrans fer þar á kostum enda mikill Haukamaður.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar