Færsluflokkur: Íþróttir

Fyrsti æfingaleikurinn

Sigur vannst í kvöld gegn Stjörnunni í fyrsta æfingaleik þessa tímabils. Lokatölur urðu 27-22 fyrir okkur í Haukunum. Spiluðum við 3-2-1 vörn allan leikinn. Þetta var fyrsti leikur hjá þónokkrum leikmönnum. Tryggvi, Hafþór ásamt Einari Erni spiluðu sinn fyrsta leik í kvöld og verðum við án efa sterkari en á síðasta ári.

Æft er nú 2 sinnum á dag 3 daga vikurnar með lyftingum í hádegi og sal að kveldi. Hina dagana er hlaupið interval fyrir eða eftir handboltaæfingar. Semsagt vel tekið á því þessa dagana. 21.ágúst verður svo farið í æfingaferð til Danmerkur þar sem við tökum þátt í sterku norðurlandamóti alveg eins og við gerðum í fyrra. Í september förum við svo til Kýpur og spilum tvo leiki í undankeppni fyrir meistaradeildina. 

 

P.s. Birkir þetta er bara rugl og skandall.  


Fyrsta æfing á morgun

Jæja. loksins loksins byrja æfingar afturW00t Fyrsta æfingin er væntanlega jójó-test öllum til mikillaYngri leikmenn ánægju. Æfingin hefst stundvíslega kl. 18 og er sektarsjóðurinn einnig komin úr sumarfríi þannig að það er eins gott að menn mæti stundvíslegaDevil

 

 

 

Eru ekki allir búnir að vera duglegir að lyftahamsterbarbellbig

 


Ekki draumariðill en sleppur

Ef.... ég meina þegar við vinnum Cyprus College þá þurfum við að fara til Þýskalands, Ungverjalands og Úkraínu. Þetta er kannski draumariðill en sleppur samt alveg. Það hefði samt verið algjör draumur ef við hefðum endað í C - riðli þar sem Kiel, Barcelona og Drammen eru saman komin. Nú er bara að taka Kýpurbúa og mæta svo ferskir í F riðil meistarardeildarinnar.

P.s. drengir bara 18 dagar þangað til æfingar byrja aftur :)


mbl.is Haukar í riðli með Flensburg og Veszprém
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plís ekki Serbía

Á þjóðhátíðardag Bandaríkjana 4.júlí verður dregið í forkeppni fyrir meistaradeildinna í handbolta. Það er möguleiki á að við mætum Rauðu Stjörnunni frá Serbíu. Ekki er það óska mótherji skal ég segja ykkur. Einnig er Benfica örugglega með hörkulið. Væri til í að fara til Lúxemborgar eða Belgíu. Serbía, Litháen, Eistland og Tyrkland eru ekki spennandi kostir.

Liðin sem við getum mætt eru eftirfarandi:

Rauða stjarnan (Serbíu)
Granitas Kaunas (Litháen)
Pölva Serviti (Eistlandi)
Cyprus College (Kýpur)
Izmir Büyksehir (Tyrklandi)
Benfica (Portúgal)
Sasja (Belgíu)
Dudelange (Lúxemborg).


mbl.is Haukar gætu mætt Rauðu stjörnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haukamenn til Peking

Það var glæsilegur leikur sem Ísland sýndi í dag gegn Svíum. Þessi leikur var aldrei í hættu. Skyttur þeirra svía voru gjörsamlega úti að aka gegn okkar feikisterku vörn og svo sá Hreiðar um restina. Í þessu landsliði eru þrír haukamenn og er vert að óska þeim sérstaklega til hamingju með þennan árangur. Birkir Ívar, Ásgeir Örn og Vignir S stóðu sig með stakri prýði ásamt hinum strákunum í liðinu og eru á leiðinni til Peking í sumar til að spila fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum.

vignirsasgeirbirkir ivar

 


Óvissuferðin 2008

Hin árlega óvissuferð hjá okkur í meistaraflokki karla var í gær laugardag. Menn hittust kl. 10 að Ásvöllum og þaðan var lagt af stað með rútu í óvissuna. Reyndar var einn leikmaður sem ekki náðist í, en hann gisti ekki heima hjá sér nóttina áður. Halldór Ingólfsson og Jón Karl Björnsson voru skipuleggjendur þessarar ferðar. Mætingin var líklega sú lélegasta í ára raðir. Við vorum 15 sem fórum en það vantaðir hátt í 10 manns. En aftur að óvissunni þá fékk Halldór að velja kajak róður á Stokkseyri, en þetta hefur honum langað að prófa í 8 ár. Til að gera langa sögu stutta þá var kajak róðurinn ekki að gera sig. Eftir sjóróðurinn þá fóru menn í sund á Stokkseyri og svo í góðan mat í Töfragarðinum sem er einmitt staðsettur á Stokkseyri. Þar hittu okkur tveir leikmenn og annar þeirra var sá sem svaf yfir sig og fékk hann stúlkuna sem hann gisti hjá nóttina áður til að skutlar sér á Stokkseyri!!!!

paintballpeteEftir góðan mat var lagt af stað aftur í bæinn og næsti viðkomustaður var Paintball og þvílíka snilldin sem það var. Skipt var í eldri vs yngri og voru spilaðir 8 leikir. Eldri unnu að sjálfsögðu öruggan sigur 7-1. Refsingin fyrir tapliðið var að velja einn úr þeirra röðum og hann var settur í kanínubúning sem var þarna á lager og við í eldra liðinu fengum að skjóta hann að vild með þeim kúlum sem við áttum eftir. Fórnalambið var Pétur Páls enda hafði hann mætt allt of seint í óvissuferðina og fékk þarna að kenna á því svo um munar að það sáust góð ummerki á bakinu hans.Devil

Pétur PálssonEftir að þessari skemmtun lauk um 18 leitið, þá fóru menn heim og skiptu um föt. Kl. 20 hittust menn svo heima hjá Jón Karli þar sem grillaðar voru steikur í mannskapinn og horft var á Eurovison í 50 tommu snjónvarpi. Kl. 23 kom svo rúta og sótti okkur og keyrði niðrí bæ. Svo er spurningin bara hvort Pétur hafi ratað heim til sína að þessu sinni?!!!!!


Hörður Davíð Harðarson

Herði fannst ég ekki gera nógu mikið úr hans þætti á lokahófinu þannig að hér kemur frétt tileinkuð honum. Ég fékk mynd af honum á Kínamúrnum í Haukatreyjunni.

Ég gleymdi að segja að kínverjarnir héldu að Höddi væri KÖRFUBOLTALEIKMAÐUR.Grin

kinahoddi

 

 

 

 

 

 

 

P.s. Höddi fæ ég núna nýja skó?


Lokahóf Haukana í gær.

Gunnar Berg ViktorssonÍ gær kvöldi var haldið lokahóf handknattleiksdeildar Hauka. Af verðlauna höfum var bar það hæst að Gunnar Berg Viktorsson var valinn besti leikmaður ársins og hjá konunum var það Inga Fríða.

Tveir leikmenn voru kvaddir eftir áralanga þjónustu inná vellinum. Halldór Ásgrímur Ingólfsson og Jón Karl Björnsson voru sérstaklega heiðraðir.

Önnur verðlaun hjá okkur körlunum voru eftirfarandi:

Bjartasta vonin: Sigurbergur Sveinsson

Leikmaður ársins valið af Haukum í horni: Freyr Brynjarsson. (klárlega bestu verðlaunin Grin)

Jón Karl BjörnssonHalldór Ásgrímur IngólfssonFreyr BrynjarssonSIgurbergur Sveinsson


Myndbönd vetrarins - kosning

Hef gert nokkur myndbönd í vetur og mig langar að biðja fólk um að kjósa það flottasta/besta. Hér koma þau 5 sem tilnefnd hafa verið.

Myndband 1 - Íslandsmeistara myndbandið

Myndband 2 - Myndbandið sem kom mönnum í gírinn fyrir Framleikinn þar sem við tryggðum okkur titilinn.

Myndband 3 - Myndbandið sem kveikti í mönnum fyrir Valsleikinn. ATH þetta myndband er stranglega bannað börnum. Þröstur fáðu leyfi frá mömmu þinni áður en þú horfir á þetta.

Myndband 4 - Freyr skorar með loftfimleikum.

Myndband 5 - Jón Karl skorar sitt síðasta mark á ferlinum á ótrúlegan hátt. Þegar þetta er skrifað eru 1547 manns búnir að skoða myndbandið.

Ennþá er eitthvað vesen með að koma þessu myndbandi beint inn á þannig að hérna er linkur á það.  Fótboltavítið

 

Kjósið það besta í athugasemdum.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband