7.2.2008 | 22:33
Veðmál útkljáð - Ítalir
Mömmustrákar á Ítalíu
Ítalskir karlmenn virðast hanga ívið lengur í pilsfaldi mömmu sinnar en aðrir því stór hluti Ítala á þrítugs- og jafnvel fertugsaldri býr ennþá heima hjá foreldrum sínum. Þá virðist ekkert fararsnið vera á þessum mömmustrákum því þeim er að fjölga og þróunin er sú að þeir dvelja lengur í foreldrahúsum. Ríflega 36 prósent ítalskra karla á aldrinum 30-34 ára búa enn hjá mömmu. Ástæðurnar eru margþættar, meðal annars mikið atvinnuleysi og aukin framfærslukostnaður.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.2.2008 | 17:05
Eldri vs yngri í fótbolta
Það er hefð hjá handboltamönnum að spila knattspyrnu í upphitun og þá er skipt upp í eldri gegn yngri. Nú erum við búnir að spila þó nokkra leiki og ekki seinna vænna en að greina frá úrslitum síðan í ágúst. Það þarf ekki að nefna það en eldri eru mun sterkari í þessum viðureignum og maður vorkennir oft þessum unglingum sem tapa hverjum leiknum á fætur öðrum. Til að sjá súlurit og kökurit þurfið þið að smella á tenginuna hér að neðan.
Eldri þyrftu helst að spila í svona búningum eins og á mynd til að yngri eigi möguleika
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.2.2008 | 17:41
Laser Tag
Já það var farið í Laser Tag sem staðsett er í kópavogi. Skipt var upp í ungir vs gamlir og voru ungir í rauða liðinu og gamlir í bláa liðinu. Fyrsti leikurinn fór þannig að gamlir unnu hann en í seinni leiknum voru það ungir sem fóru með sigur á hólmi. Í samanlögðu hafa ungir smá forskot en það er alveg ljóst að það verður að fara fram úrslitaleikur og því er staðan 1-1. Þess má geta að dóttir hans Dóra spilaði fyrir hann í seinni leiknum en Dóri var í 3 sæti í fyrstu umferðinni, en hún stóð sig vel og varð ekki í síðasta sæti. Það má þó segja að nokkrir af ungu hafa greinilega fundið sína íþrótt þarna því ekki er innanhúsknattspyrna þeirra fag. Leikmenn eins og Þröstur og Pétur eiga vel heima í hernum. Þröstur fær þann heiður að vera Laser Tag meistari en hann var í 1 sæti í fyrri leiknum og í 2 sæti í seinni en þó var Pétur með hærra heildarskor, þeir verða bara rífast um hver sé betri. Þó svo að ungir hafi átt besta leikmanninn þá áttu þeir einnig þann slakasta. Sá leikmaður lenti í síðasta sæti í báðum leikjum og má því með sanni segja að hans sterka hlið eru ekki skotbardagar. Hann náði ekki einu sinni að vinna dóttir hans Dóra sem er 13 ára. Vill ekki særa neinn og nefni því ekki leikmanninn á nafn en gef samt smá vísbendingu, (er fínn í golfi og er samfeðra og hann Svampur).
Hér eru samanlagt skor í þessum tveimur leikjum.
Stig Sæti
Óskar 400 15
Jón Karl 987 3
Elli 624 11
Maggi 758 7
Gísli G 571 13
Gísli J 681 8
Andri 459 14
Kári 611 12
Beggi 307 16
Þröstur 1169 2
Tóti 981 4
Gunni 841 6
Addi P 679 9
Pétur 1181 1
Halldór 671 10
Freyr 867 5
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2008 | 11:09
Óvissuæfing?
Í dag er skipulögð svokölluð óvissuæfing, en þetta er greinilega eitthver dönsk hugmynd sem Aron kemur með að utan. Það eina sem við vitum er að mæting er kl.13 að Ásvelli og við eigum að vera í íþróttaklæðnaði og að þetta fer fram innandyra (sem betur fer). Hefðum alveg eins búist við útihlaupi eftir leikinn í gær. Kannski verður bara píptest í staðinn. Æfingin á að standa í 2 tíma. Ég læt ykkur vita í kvöld hvernig þessi óvissuæfing fer fram.
Í kvöld förum við liðfélagarnir ásamt konum út að borða á Como. Þar verður í boði Susi í forrétt og svo steikarhlaðborð.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2008 | 23:26
Tap í fyrsta leik ársins
Það var ekki góður leikur sem við spiluðum í kvöld þegar við mættum Val. Byrjuðum ágætlega og náðum 3 marka forustu 6-9 en þá fór sóknaleikurinn að verða tilviljunakenndari og við byrjuðum að skjóta lélegum skotum. Þeir komust inn í leikinn og voru yfir 15-13 í hálfleik. Í seinnihálfleik lékum við eins og asnar og létum Óla í markinu hjá þeim verja allt of marga bolta. Fengum á okkur 17 mörk í seinnihálfleik en við skoruðum 14 sem er allt í lagi nema hvað við vorum engan vegin klárir í að spila okkar varnaleik og því fylgir oft minni markvarsla. Þetta minnti soldið á leikinn sem við töpuðum í fyrstu umferðinni gegn Stjörnunni.
Næsti leikur er gegn ÍBV á heimavelli og þar kemur ekkert annað en sigur til greina.
markaskor: Beggi 8/12, Andri 5/10, Gunni 5/8.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2008 | 11:04
Valur vs Haukar í kvöld - N1-deildin
Þá er mótið loks að byrja aftur eftir langt hlé. Við haukamenn erum búnir að æfa vel og fórum í æfingaferð til Frakklands núna í lok janúar. Þar áttum við misjafna leiki en við spiluðum 3 leiki og töpuðum einum örugglega, jafntefli í þeim næsta og töpuðum síðan í síðasta leiknum með hjálp frá dómurum leiksins.
Í kvöld förum við að Hlíðarenda og mætum Valsmönnum í 5 sinn á þessu keppnistímabili. Tveir í deild og tveir í bikar. Í deild höfum við unnið einn og í hinum varð jafntefli. Í bikarnum þá unnu Valsmenn í Eimskipsbikarnum en við unnum í deildarbikarnum. Þetta verður án efa hörkuleikur og mjög mikilvægt fyrir bæði lið að ná 2 stigum.
Hjá okkur vantar ennþá Arnar Jón og svo eru Dóri og Andri Stefan tæpir. Líklega verður Andri ekkert með.
Leikurinn hefst kl. 20 að Hlíðarenda. Áhorfandi númer 555 fær frítt inn.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2008 | 21:23
Tap gegn Chambery
Í dag spiluðum við gegn Chambery og sá leikur var jafn framanaf en svo komust þeir í mest 6 mörk í fyrrihálfleik og staðan var 17-11 í hálfleik. Í seinni hálfleik mættu menn tilbúinir og náðum við að minnka muninn í 2 mörk 22-20 en þá tóku dómarar leiksins sig til og gjörsamlega misþyrmdu okkur með fáranlegum dómum. Ruðningar og skref voru í miklu uppáhaldi hjá þeim og loka staðan var 31-26.
Á morgun förum við snemma til London og munum við eyða deginum þar til við förum kl. 21 annað kvöld. Skipulögð er tour um London fyrir þá sem vilja.
Markaskor í leiknum: Elli 7/10, Beggi 5/12.
Maggi stóð í rammanum og stóð sig vel.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2008 | 11:34
Chambery - Haukar í dag
Í dag fer fram þriðji og síðasti leikur okkar í þessum æfingamóti. Liðið sem við mætum heitir Chambery og er í 3 sæti frönsku deildarinnar. Í liði Chambery er hinn magnaði Jackson Richardson sem spilaði með Franska landsliðinu hér á árum áður. Hann hefur reyndar ekkert spilað í hinum leikjunum en hann er greinilega að hvíla sig fyrir leikinn gegn okkur. Þeir töpuðu fyrir Silkeborg í fyrsta leik sínum en unnu svo Dunkurq í gær með 4 mörkum.
Andri, Dóri og Arnar Jón verða ekki með í dag. Arnar Jón og Dóri hafa ekkert spila í þessum leikjum og Andri Stefan meiddist lítiðlega á ökkla.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2008 | 10:59
Jafntefli við Bjeringbro Silkiborg
Það var allta annað að sjá til leiks okkar í gær þegar við mættum Bjeringbro frá danmerku. Þetta lið var fyrirfram talið sterkasta liðið í þessu móti. Við mættum tilbúinir til leiks og þar fór Andri Stefan fremstur í flokki í fyrrihálfleik en hann setti 8 mörk. Hann meiddist svo snemma í seinni hálfleik og spilaði ekkert meir. Staðan í hálfleik var 17-16 okkur í vil. Í seinni hálfleik náðum við mest 4 marka forustu en við misstum að niður og þegar um 3 mín voru eftir voru þeir 2 mörkum yfir. Við náðum að jafna og þeir áttu svo síðustu sóknina í leiknum en náðu ekki að skora og því jafntefli staðreynd 34-34.
Beggi 10/14, Andri 8/12, Freyr 6/7, Kári 6/7, Elli 2/4, Gunni 1/5, Gísli Jón 1/1.
Gísli Guðmunds varði vel í markinu og var með um 15 bolta.
Næsti leikur er í dag.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2008 | 22:40
Viva la France
Hér erum við í Frakklandinu búnir að spila einn leik og vægast sagt skíta upp á bak þar. Fer ekkert nánar út í það hér, sá leikur er búin og ekki hægt að gera mikið meira upp á bak. Á morgun förum við til Lille og spilum við Beringborg Silkiborg, en við mættum þeim einmitt í haust þegar við fórum til Danmerkur í æfingaferð. Töpuðum þeim leik með 2-3 mörkum að mig minni.
Búnar eru tvær æfingar og að sjálfsögðu hefur verið fótbolti í upphitun. Ungir vs Gamlir og það er sama sagan Gamlir eru með þessa ungu punga í vasanum, þessir drengir völdu greinilega rétta íþrótt.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 163584
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Trump íhugar árás á Íran
- Trump frestar TikTok-banni um 90 daga
- Bolsonaro sakaður um njósnir og tilraun til valdaráns
- Stóð í vegi fyrir afdráttarlausri stuðningsyfirlýsingu
- Rússar lesa Ísraelum pistilinn
- Tveir bæjarstjórar myrtir á tveimur dögum
- Manndrápstilraun á 12 tonna lyftara
- Ísrael vinni skítverkin í Íran