Myndbönd vetrarins - kosning

Hef gert nokkur myndbönd í vetur og mig langar að biðja fólk um að kjósa það flottasta/besta. Hér koma þau 5 sem tilnefnd hafa verið.

Myndband 1 - Íslandsmeistara myndbandið

Myndband 2 - Myndbandið sem kom mönnum í gírinn fyrir Framleikinn þar sem við tryggðum okkur titilinn.

Myndband 3 - Myndbandið sem kveikti í mönnum fyrir Valsleikinn. ATH þetta myndband er stranglega bannað börnum. Þröstur fáðu leyfi frá mömmu þinni áður en þú horfir á þetta.

Myndband 4 - Freyr skorar með loftfimleikum.

Myndband 5 - Jón Karl skorar sitt síðasta mark á ferlinum á ótrúlegan hátt. Þegar þetta er skrifað eru 1547 manns búnir að skoða myndbandið.

Ennþá er eitthvað vesen með að koma þessu myndbandi beint inn á þannig að hérna er linkur á það.  Fótboltavítið

 

Kjósið það besta í athugasemdum.

 


Haukamenn verðlaunaðir á HSÍ hófinu

Íslandsmeistarar 2008Kvöldið byrjaði hjá útibúi BYR í Hafnafirði en þeir eru einmitt aðalstyrkaraðilli Hauka í handbolta. Þarna mættu leikmenn og stjórnamenn ásamt öðru góðu haukafólki. Um kl. 20 var svo lagt af stað á Broadway.

Haukamenn fengu að sjálfsögð þó nokkuð af verðlaunum enda yfirburða lið í vetur.

Arnar Pétursson var valinn besti varnarmaður deildarinnar

Gunnar Berg Viktorsson fékk Valdimarsbikarinn - Besti maður deildarinnar samkvæmt fjölskyldu Valdimars.

Andri Stefan var valinn besti sóknarmaðurinn

Aron Kristjánsson var svo að sjálfsögðu valinn besti þjálfarinn

og svo fengu Haukar verðlaun fyrir bestu umgjörðina í karlaflokki.

Í liði ársins áttum við 3 leikmenn: Sigurbergur í vinstri skyttu, Andri Stefan á miðjunni og Aron sem þjálfari ársins.

Hanna Guðrún Stefánsdóttir fékk háttvísiverðlaun HSÍ í kvennaflokki og Björn Viðar, vinur allra haukamanna var valinn besti markvörður 1.deildar en hann leikur með Víkingi.

SIgurbergur SveinssonGunnar Berg ViktorssonArnar PéturssonAndri Stefan GuðrunarsonAron Kristjansson


Lið umferðar 22-28.

Það voru haukamenn sem eignuðu sér þetta val á liði 4 umferðar N1-deildarinnar. Liðið var skipað eftirfarandi:

Gunnar Berg ViktorssonLínumaður: Arnar Pétursson,Brynjar Dagur og Freyr

Vinstra horn: Freyr Brynjarsson,

Vinstri skytta: Gunnar Berg Viktorsson,

Miðjumaður: Andri Stefan,

Hægri skytta: Rúnar Kárason (Fram),

Hægra horn: Ragnar Hjaltested (HK) 

Markmaður: Petja (HK),

Aron Kristjánssonþjálfari: Aron Kristjánsson og besta umgjörð: Haukar.

Eins og sést þá áttum við haukamenn þessa umferð og gætum hæglega átt fleiri eins og t.d. hefði hann Elías alveg mátt eiga heima þarna. Svo hefðu menn eins og Kári Kristján og Gísli Jón líka alveg getað átt heima í þessu liði. 

 

Arnar PéturssonArnar Pétursson var svo valinn besti maður umferðarinnar og það kom ekki á óvartAndri Stefan Guðrunarson að Haukarnir hafi fengið verðlaun fyrir bestu umgjörðina á leikjum þessara umferðar. 


Íslandsmeistara myndbandið

Hér kemur myndbandið af Íslandsmeisturum Hauka.


Lokagreiðsla í sektarsjóð

Menn eru vinsamlegast beðnir um að borga sektir sínar ekki seinna en strax, þeir sem ekki verða búnir að klára sína sekt fá ekki að koma með í óvissuferðina í lok maí.

Borga inn á reikning: 1101-26-500505   Kennitala:0505773769 (BYR í hafnafirði)

Skuldalisti er eftirfarandi:

SKULDALISTI  
 Skuldir  alls
Andri Stefan400
Arnar Pétursson0
Arnar Jón Agnarss.6.400
Aron Rafn0
Magnús Sigmunds0
Gunnar Berg Viktors0
Freyr Brynjarsson0
Gísli Guðmundsson0
Gísli Jón Þórisson1.200
Halldór Ingólfsson1.500
Jón Karl Björnsson1.500
Þórður Rafn3.700
Kristján Örn4.700
Kári Kristjánsson1.600
Pétur Pálsson0
Sigurbergur Sveins5.500
Þröstur Þráinsson400
Finnbogi1.200
Elli4.500
Sigurjón0
Jónatan0
Tjörvi1.100
Stefán2.600
Óskar Ármansson200
Hörður Harðarson0
Aron Coach0
Samtals:   46.100    


Nýtt met í deildinni

Íslandsmeistarar 2008Jafntefli er staðreynd og við vinnum þessa deild með 9 stiga forskoti sem er met, en gamla metið var 8 stiga forskot back in the day. HK náði að jafna leikinn á síðustu sek leiksins og fögnuðu eins og þeir hefðu orðið Íslandsmeistarar. Við höfðum unnið þessa deild þegar 4 leikir voru eftir og í þessum leikjum unnum við tvo og gerðum tvö jafntefli, ekki slæmt miðað við að þessir leikir hafi ekki skipt neinu máli. Nú er þessi deild formlega lokið og næsta föstudag verður HSÍ hófið þar sem Sálin heldur uppi stuðinu. Spurning hvort HSÍ  hringi ekki í Ómar Ragnarsson og fái hann til að verða kynnir eins og árið 2006 Tounge.

Næstu helgar verður nóg að gera fyrir okkur í Haukunum. Næsta föstudag verður HSÍ hófið eins og áður segir svo helgina eftir það verður lokahóf Haukana og laugardaginn eftir það óvissuferð hjá okkur strákunum í m.fl.

P.s Þessi mynd á mbl er ekki frá leiknum í dag. Efast um að nokkur blaðamaður hafi verið á staðnum, hvað þá ljósmyndari frá blöðunum.

P.s.2 Það kemur myndband fljótlega um veturinn.


mbl.is HK og Haukar skildu jöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HK-Haukar: Síðasti leikurinn

Þá er komið að síðasta leik okkar í vetur. Þessi leikur skiptir engu um lokastöðu í deildinni. Við erum og verðum Íslandsmeistarar og HK verður í öðru sæti. Við ætlum okkur sigur í þessum leik og enda þetta tímabil með glans. Við getum endað deildina með 11 stiga forskoti eða 7 stigum, klárlega er betra að rústa deildinni með 11 stigum. Leikurinn fer fram í Digranesi kl. 14 í dag.

Nú orðið er engin umfjöllun um leiki deildarinnar og ég skil ekki afhverju blöðin geta ekki klárað dæmið til enda þó svo að úrslit deildarinnar séu ráðin. Það vantar alveg markaskorara í undanförnum 2 leikjum á netsíðum mbl og vísi, þeir eru greinilega ekki að mæta á svæðið.

diddiEn það er alveg ljóst að HSÍ þarf á fjölmiðlafulltrúa til starfa hjá sér. Spurning um að HSÍ íhugi þetta fyrir næsta tímabil. Ég er með mann í þetta en hann heitir Sigurjón Sigurðsson a.k.a Diddi. Hann hefur verið að ganga í ýmis störf fyrir HSÍ undanfarið eins og að stjórna fundinum þegar Gummi Gumm var kynntur og svo var hann lýsir í deildarbikarnum. Þarna er maður sem kann að koma málum á framfæri og myndi verða til þess að lyfta handboltanum á hærra plan næsta vetur. Einar, tjékkaðu á þessu.


83 kvikindi bónað

Hópmynd með yngri flokkumÞað gekk vonum framar í gær þegar haukafjölskyldan tók sig saman og fór að bóna bíla. Menn mættu kl.8:00 (eða flestir, pétur var eitthvað seinn að drattast á fætur). Meistararflokkarnir og unglingaflokkarnir skiptu vöktum á milli sín og gekk þetta eins og í sögu. Gísli Guðmundsson er maðurinn á bak við þessa fjáröflun og á hann hrós skilið fyrir gott skipulag og stjórnun. Eins og fyrirsögnin segir þá náðist að taka 83 bíla í bón og alhreinsun og ef við tökum meðaltalið sem er 8000kr þá erum við að tala um 664000 kr fyrir daginn, geri aðrir betur.

Bóndagur Hauka - 1.maí

bonaHaukamenn og konur í eldri flokkum ætla að hafa bón dag á morgun fimmtudag, en það er hluti af fjáröflunar leið handknattleiksdeildarinnar. Boðið er upp á bón og alþrif á bílnum þínum gegn vægu gjaldi. Hægt er að koma með bílinn sinn í bílageymsluna í Firðinum Hafnafirði milli kl. 8:00 til 20:00 á morgun fimmtudaginn 1.maí.

Hægt er að láta sækja bílinn sinn og honum þá skilað aftur skínandi hreinum.

Bílarnir verða teknir í gegn bæði að utan sem innan. Við verðum undir markaðsverði í dag en verðið fyrir fólksbíl er 7000kr en fyrir jeppa 9000kr.

Þeir sem vilja láta þrífa bílinn sinn og svo bónaðan fyrirberir sumarið geta mætt og við tökum bílinn strax í gegn.

Þeir sem vilja láta sækja bílinn sinn hafið samband við Gísla Guðmundsson í síma 6983505

BÍLAGEYMSLAN Í FIRÐINUM HAFNAFIRÐI. 141637p5gzb9e1ls


Vítakast aldarinnar

Vítakastið hans Jóns Karls hefur heldur betur sett allt á annan endan og það er komið svo langt að dómarasamband evrópu ætlar að taka þetta fyrir á fundi í vikunni því það er í raun ekkert til um þetta í reglubókinum. Bjó til myndaband á youtube. Það kemur von bráðar. 

Eitthvað vesen er að setja þetta blessaða myndband inn en það er hægt að ná í það hér.

Vítakastið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband