Fjölskyldudagur að Ásvöllum á morgun

Enn og aftur er sannkallaður handboltadagur hjá okkur haukamönnum og konum. Konunar byrja veisluna þegar Gróttu stelpur mæta í heimsókn. Hefst sá leikur kl. 14. Við haukamenn fáu svo Akureyrí í heimsókn og hefst sá leikur kl.16. Kl. 18:15 spila svo U-liðið gegn Gróttu í 1.deild karla.

N1(1)En aftur að okkar leik gegn Akureyri. Akureyri hefur á að skipa góðum leikmönnum og koma án efa tilbúnir til leiks eftir að hafa tapað gegn FH í síðasta leik. Árni Sigtryggs mætir okkur í fyrsta skipti síðan hann yfirgaf Haukana fyrir 2 árum. Þar spilar hann með stóra bróður og einnig fyrrverandi haukamanni Rúnari Sigtryggs. Þessi tveir ásamt honum Jónatani eru gríðalega öflugir leikmenn sem við þurfum að stoppa. Það eru allir klárir í slaginn hjá okkur og í raun erum við alltaf 15 leikmenn sem mætum til leiks og því alltaf 1 sem þarf að hvíla.

Nú er um að gera fyrir Haukafólk að mæta að Ásvelli á morgun til að styðja sitt lið. Boðið er upp á barnagæslu fyrir yngstu börnin í sér barnahorni. Það er engin afsökun til að sleppa því að mæta.

Áfram Haukar.


5 vatnsberar

Í skoðanakönnuninni sem hefur verið síðustu vikur var spurt hvernig tengdist viðkomandi N1-deildinni.

Niðurstöðurnar voru þær að 43 % eða 29 leikmenn í N1 deildinni skoða síðuna, 44% eða 31 eru áhorfendur, 5 % eða 4 þjálfarar komu við og svo var met fjöldi af vatnsberum eða 5 vatnsberar sem gerir 7%.  Heildarfjöldi sem kaus var 69 manns.

Næsta spurning er persónuleg. Felst hún í að athuga í hvernig nærfatnaði menn/konur ganga í.


Sigur gegn Stjörnunni í dag.

elliÞað voru nokkuð örugg úrslit sem náðum fram í dag þegar Stjarnan kom í heimsókn. Við leiddum frá upphafi og spiluðum góða 5-1 vörn. Staðan í hálfleikSIgurbergur Sveinsson var 15-11 okkur í vil. Í seinnihálfleik byrjuðu Stjörnumenn betur og minnkuðu muninn í 2 mörk. En lengra komust þeir ekki og við fórum niður í 6-0 vörn og kláruðum leikinn örugglega með 7 marka sigri 28-21. Markahæstu leikmenn hjá okkur voru þeir Sigurbergur og Kári með 6 mörk.

Arnar PéturssonÞess má geta að Arnar Pétursson var að spila sinn 100 leik fyrir Haukana, við haukamenn óskum honum til hamingju með það.


Haukadagur á morgun að Ásvöllum.

                    Vs                     Stjarnan

Á morgun fer fram sannkallaður Haukadagur. Klukkan 14 leika Haukakonur við Stjörnuna. Strax á eftir leikum við Haukamenn einnig gegn stjörnunni nema bara karlaliðinu þeirra!!!. Þá er ballið ekki búið heldur spila Unglinga Haukamenn gegn Fjölni í 1.deild karla og hefst hann kl. 18:15. Nú byrjum við deildirnar með krafti og því mikilvægt að fá góðan stuðning frá áhorfendum.


Ný skoðanakönnun

Í síðustu skoðanakönnun var spurt hvernig leikurinn gegn Val í meistarar meistarana færi. Þar voru 55 manns sem svöruðu og var skiptingin þannig að 40 spáðu rétt, þ.e.a.s. Hauka sigri en 15 sögðu að Valur myndi vinna. Þetta gerir 73% gegn 27%.

Nú er ný könnun komin af stað þar sem spurt er um hlutverk hvers og eins þegar kemur að N1- deildinni. Ertu áhorfandi/stuðningsmaður, leikmaður, þjálfari eða kannski vatnsberi.


Hauka sigur í kvöld

Gísli GuðmundssonÞað var hörkuleikur sem fór fram í Laugardalshöllinni í dag þegar við Haukamenn mættumValsmönnum um titilinn meistarar meistarana. Leikurinn byrjaði rólega og lítið var skorað fyrstu mínutunar. Við leiddum mest af fyrrihálfleik en staðan var svo 10-10 þegar kom að hléi. Í seinnihálfleik var þetta áfram mikil barátta og um miðjan seinnihálfleik voru Valsmenn einu yfir en við hleyptum þeim ekki of langt í burtu. Gísli Guðmundsson var í markinu hjá okkur allan leikinn og stóð sig frábærlega. Það er honum að þakka að við misstum ekki Valsmenn of langt frá okkur. Þegar um 7 mín voru eftir náðum við 2 marka forskoti og það var nóg til að Valsmenn fóru í ótímabær skot og við bættum svo við og unnum með 4 mörkum 25-21. Eins og áður segir þá var Gísli G okkar besti maður og svo sannalega betri en enginn í rammanum. Gísli Jón var einnig öflugur í sókninni ásamt að Einar Örn nýtti öll 5 vítaskot sín í leiknum. Annars var liðsheildin góð, vörnin stóð fyrir sínu og markvarsla fylgdi í kjölfarið. Næsti leikur er í deildinni gegn Stjörnunni 20.sept að Ásvöllum. 

Markaskor:

Gísli Jón 5, Einar Örn 5, Kári 4, Elli 3, Freyr 2,Hafsteinn 2, Arnar Jón 2, Andri Stefan 2

Gísli G varði eitthvað um 20 bolta og Birkir kom inn á og varði eitt víti. 


Leikjahæstu Haukamennirnir í dag.

Ég tók mig til og ákvað að athuga hver leikjafjöldi hjá þeim leikmönnum sem eru að spila með Haukum í dag. Þá tók ég bara þá sem hafa leikið lengst. Andri Stefan hafði stuttu áður tekið saman leikjafjöldann hjá sjálfum sér og var hann komin rétt undir 300 leiki fyrir Haukana.

Erfitt var að ná nákvæmum upplýsingum um Birkir Ívar og Einar Örn en Birkir spilaði einhver 4 tímabil held ég fyrir Haukana og var þar með u.þ.b. 150 leiki og er nú að bæta við sig. Hjá Einari Erni er ég ekki alveg klár á enda vantar mikið í HSÍ vefinn. 

Upplýsingar fékk ég á heimasíðu Hauka og HSÍ.

Andri Stefan = 293(með leiknum á morgun)

Gísli Jón  = 209 ( þá með leiknum á morgun)

Birkir Ívar =u.þ.b. 150 leikir

Freyr B = 141 (með leiknum á morgun)

Arnar P = 99 (með leiknum á morgun)

Kári Kristján = 96( með leiknum á morgun)

Kem með fleiri leikmenn fljótlega. 


Haukar-FH í firðinum í dag

Kári Kristján KristjánssonÍ Firðinum í dag mættu meistaraflokkar FH og Hauka bæði hjá körlum og konum til að keppa í sjómann og skothörku. Hjá konunum unnu þær skothorkukeppnina og líka sjómanninn. Hjá körlunum sigriðu FH-ingar skothorkuna en Kári Kristján slátraði sjómanninum, annað væri bara rugl enda sjómaður þarna á ferð (að eigin sögn). Haukamenn unnu því samanlagt og eru því Fjarðarmeistarar 2008.

 


Meistarar meistarana frestað

Okkur haukamönnum til mikillar mæðu þá er búið að fresta leiknum sem við áttum að spila núna á laugardaginn við Val í meistarar meistarana. Hefur HSÍ fært hann yfir á sunnudag kl.16. Er þetta vegna þess að Valsmenn eru með Valsdag í knattspyrnunni. Kvennaliðið spilar kl. 13 og karla liðið kl. 16. Enn og aftur er ekki hægt að treysta því sem HSÍ er búin að skipuleggja og auglýsa. Menn voru búinir að ráðstafa sunnudeginum en eins og fyrr segir þá eru öll svoleiðis plön fokin fjandans til. 

Myndu þið sjá KSÍ færa til leik vegna þess að lið í handboltanum er með handboltadag. Persónlega held ég ekki.


Meistaradeildinn framundan

Þá er það klárt við erum á leið í meistaradeildina og mætum þar meðal annars Flensborg og Vestprem.

Leikurinn í kvöld var jafn í upphafi en fljótlega náðum við ágætu forskoti. Við byrjuðum í 5-1 vörn og spiluðum hana mestan hluta af fyrri hálfleik. Duttum niður í 6-0 vörn undir lok fyrrihálfleiks. Staðan var 18-13 okkur í vil í hálfleik. Í seinni hálfleik byrjuðum við illa alveg eins og í fyrri leiknum og eftir 40 sek voru þeir búnir að skora 2 mörk og við missa einn mann útaf í 2 mín. Við héldum þeim þó frá okkur. Um miðjan seinniháfleik var staðan 25-17 okkur í vil en þá slökuðum við á klónni og þeir minnkuðu muninn í 3 mörk, loka staðan var svo 34-30 okkur í vil og meistaradeildar sæti staðreynd.

Kýpur menn mega eiga það að þeir eru seigir og gefast ekki upp. Miðjumaðurinn hjá þeim var með 10 mörk og er mjög góður leikmaður með góðan leiksskilning. Næstur í markaskori hjá þeim var gormurinn nr.8 í vinstri skyttunni með 6 mörk.

Vörnin hjá okkur var mjög góð langt framan af leik og eigum við bara eftir að verða betri varnalega. Markvarslan getur verið betri og það er alveg klárt að við eigum helling inni á þeim bænum.

elliMarkaskorið hjá okkur: Elías 6, Beggi 6, Einar Örn 5, Kári 4, Freyr 3, Andri 3, SIgurbergur SveinssonArnar Jón 3, Gísli Jón 3 og Gunnar Berg 1.


mbl.is Haukar komust áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband