Evrópukeppninni lokið

SIgurbergur SveinssonÞá er okkar þátttöku lokið í Evrópukeppninni í handbolta. Við getum verið nokkuð sáttir við okkar framlag til hennar á þessu tímabili. Við náðum 4 stigum í riðlakeppni ellimeistaradeildarinnar en þar unnum við frækin sigur á eitt af toppliðum í Evrópu, Veszprém. Leikurinn í dag var mun betri en leikurinn á föstudaginn en eins og Aron sagði réttilega þá var allt of mikið að tapa með 7 mörkum. Við vorum yfir í hálfleik 18-15 og vorum að spila frábæra vörn ásamt því að slúttinn voru mjög góð í sókninni. Einnig varði Birkir vel fyrir aftan. Í síðari hálfleik misstum við fljótlega niður forskot okkar en við hleyptum þeim aldrei of langt frá okkur. Við fengum á okkur 23 mörk í seinni hálfleik og þar hafði mikið að segja að markverðir okkar vörðu aðeins 3 skot í seinni hálfleiknum. Einnig misstum við Andra Stefan fljólega í Kári Kristján Kristjánssonrautt spjald og því riðlaðist aðeins sóknarleikur okkar. Nú er þessu skemmtilega verkefni lokið og mjög líklegt að þátttaka íslenska liða í evrópukeppninni sé lokið í bili. Mjög ólíklegt að einhver lið fari í evrópukeppnir á næsta ári vegna efnahagsástandsins.

Markahæstu menn: Beggi 10, Elli 5, Kári 5, Freyr 4, Einar 3, Andri 3, Tjörvi 1.

Næsti leikur er gegn Val að Ásvöllum og það verður enn einn úrslitaleikurinn í vetur um efsta sætið. Núna byrjar undirbúningur fyrir þann leik.

lidsmyndhaukari veszprem


mbl.is Gott hjá Haukum í 50 mínútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gúrku mótið 2009 - Þýskalandsmeistari

einarjonsÍ gærkveldi fór fram gúrkumót hjá okkur haukamönnum og alls voru 16 þátttakendur. Óskar ÁrmannssonKeppt var á 3 borðum og fóru 2 efstu á hverju borði í úrslit. Úrslitaborðið var skipað: Begga, Einari, Tóta, Adda P, Arnar Jón og Óskar. Allir lögðu 5 evrur undir og því til mikils að vinna. Þeir 2 sem börðust svo um 1.sætið voru þeir Óskar og Einar Örn. Það var svo hann Einar Örn sem fór með sigur á hólmi og er því Þýskalandsmeistari í Gúrku. Til hamingju Einar.

 

Til gamans má geta að Stefán Rafn fékk þann vafasama heiður að detta fyrstur út, í fyrsta spilinu.

 


13 marka tap á föstudeginum 13.feb

Það var ekki mikið fyrir augað að horfa á okkur gera upp á bak gegn Nordhorn í kvöld. Nordhorn byrjaði leikinn mjög vel og komust í 5-1 en þá vöknuðum við aðeins og náðum að minnka muninn í 1 mark 7-8. Eftir það var þetta einstefna staðan í hálfleik var svo 18-12 fyrir heimamenn og réðum við ekkert við línumanninn þeirra. Vörnin var stöð og sóknaleikurinn arfaslakur. Í seinni hálfleik héldum við áfram að spila eins og smástrákar og þeir gengu á lagið og unnu mjög svo öruggan sigur 34-21. Til marks um hversu lélegt þetta var þá gerðum við 21 tæknifeila í leiknum. Eini maðurinn sem var með einhverri meðvitund í sókninni var Beggi en hann setti 11 af 21 mörkum okkar þar af 5 úr vítum. Aðrir voru ekki með. Línumaðurinn þeirra (slóveni) setti heil 13 mörk á okkur.

Næsti leikur er á sunnudaginn og við ætlum okkur stærri hluti í þeim leik. Það er ekki hægt að ljúka þessari evrópukeppni með svona frammistöðu.

Markaskor: Beggi 11, Freyr 2, Einar 2, Kári 2, Andri 2, Stebbi 1, Elli 1.

Markverðir okkar vörðu samanlagt 10 skot.


Úrvalslið umferðar 8 -14.

Það var sannkallaður haukadagur á Hótel Loftleiðum í dag. Alls unnum við haukamenn 9 verðlaun fyrir umferðir 8-14.

Brynjar Dagur og FreyrHjá okkur strákunum voru valdir: Birkir Ívar í markinu, Freyr í vinstra horninu, Beggi í vinstri skyttu og Aron sem þjálfari. 

Freyr var svo valinn besti leikmaður 2.umferðar.

Hjá stelpunum voru valdar:  Hanna Guðrún í hægra horni, Ramune í vinstri skyttu og Nína Björk á línunni. 

Ramune var svo valinn besti leikmaður 2.umferðar.

 

Glæsilegur árangur hjá okkur Haukamönnum og konum.


Haukar - Nordhorn: Ferðaplan

Næstkomandi fimmtudag leggjum við Haukarnir af stað til Þýskalands til að leika 2 leiki við Nordhorn.

Fimmtudagur 12.febrúar

5:30 - Lagt af stað frá Ásvöllum

7:50 - 11:50 - Keflavík-Amsterdam Flug:FI 502

12:30 - Rúta frá flugvellinum á hótelið í Nordhorn

15:00 - Komið á Hotel Am Stadtring - www.hotel-am-stadtring.de

15:15 - Hádegismatur

17:30 - Æfing

20:30 - Kvöldmatur

 Föstudagur 13.febrúar

9:00 - Morgunmatur

10:10 - Æfing

12:30 - Hádegismatur

13:30 - Fundur

16:00 - Létt máltíð

17:50 - Lagt af stað í leik (Lingen)

19:30 - Haukar - Nordhorn

Laugardagur 14.febrúar

9:30 - Morgunmatur

13:00 - Hádegismatur

14:00 - Fundur

15:40 - Æfing

19:00 - Kvöldmatur

Sunnudagur 15.febrúar

9:30 - Morgunmatur

13:00 - Hádegismatur

14:00 - Fundur

15:40 - Lagt af stað í leik

17:00 - Nordhorn - Haukar

Mánudagur 16.febrúar

10:25 - 11:45 Amsterdam - Copenhagen Flug:SK 552

13:20 - 15:30 Copenhagen - Keflavík Flug:FI 205


Rassskelling á litla liðinu í Hafnarfirði

elliÞað var aldrei spurning hvernig þessi leikur myndi enda, aðeins var spurning um með hvað mörgum mörkum við myndum sigra þá. Við spiluðum frábæra vörn og náðum fljólega 4-1 forskoti. Staðan í hálfleik var svo 15-9 okkur í vil. Í seinni hálfleik héldum við áfram að spila massa vörn SIgurbergur Sveinssonásamt að spila yfirvegaðan sóknaleik. Við jukum forskotið hægt og sígandi og leikurinn endaði með 12 marka mun 34-22.

Markahæstir hjá okkur: Beggi 9/13, Ellir 7/10, Freyr 6/8, Andri 4/6, Arnar Jón 2/3, Heimir 2/3, Kári 2/3,Gunnar Berg 1/1, Einar Örn 1/4

Nú er 2.umferð lokið og ljóst að við erum í efsta sæti og þar af leiðandi fáum við heimaleiki í 3.umferð gegn liðum í 2.sæti (Valur), 4.sæti (FH), 6.sæti (Akureyri) og 8.sæti (Víkingur). Útileikir eru því gegn Fram, HK og Stjörnunni.

 Næsta verkefni hjá okkur Haukunum er ferðalag til Þýskalands þar sem við leikum tvo leiki gegn Nordhorn í Evrópukeppni félagasliða. Farið er út 12.feb og spilað 13 og 15.feb. Við komum svo aftur heim mánudaginn 16.febrúar.

 Læt hér fylgja frumsamið ljóð frá eldheitum stuðningsmanni.

Handboltahetjur Hauka

Mikilvægur miðjumaðurinn er.
Eins markmaður sem leikur sér.
Skyttan skýtur og fer í hark.
Sjáðu er hún gerir mark.

Hornamaður heldur knár.
Í hraðahlaupum er klár.
Handbolti er Hauka fag.
Enda hafa þeir margir lag.

Á línu liggur færið vel.
Að leikmönnum verður ei um sel.
Víti þeir veiða af miklu stolti.
Svo viljandi í mark fer þeirra bolti.

Aðalheiður Davíðsdóttir - Trommarafrú.

Haukar - FH í kvöld kl. 19:30

Þá er komið að leik númer 3 í rimmum þessara liða. FH - ingar hafa unnið fyrstu tvo og því mikilvægt fyrir okkur að ná fram sigri í kvöld. Undanfarna daga hafa hefur verið að tala um að Aron og Ólafur verði ekki með. Það verður synd ef þeir verða ekki með og hef ég litla trú á öðru en að þeir spili.

Nú er lag að fylla höllina að Ásvöllum og aldrei betra tækifæri til þess en í kvöld. Haukamenn mætum í rauðu og verðum 8 maðurinn. 


Fram teknir í kennslustund

SIgurbergur SveinssonÞað var aldrei spurning hvernig úrslit þessa leiks myndu vera. Við byrjuðum með miklum krafti og Fram átti engin svör við vörn okkar í kvöld. Við skoruðum fyrstu 4 mörkinn áður en þeir náðu að setja mark úr víti, en það var eftir 9 mín leik. Staðan í hálfleik var 16-7 okkur í vil. Í seinnihálfleik tóku Framarar 2 menn úr umferð og áttum við í smá strögli í fyrstu sóknunum en vörnin stóð áfram fyrir sínu. Seinni hálfleikur varelli nokkuð jafn en við unnum seinni hálfleikinn líka. Loka staðan var svo 30-20 okkur í vil og toppsætið okkar.

Markaskor: Beggi 9 (8 víti), Elli 6, Freyr 4, Gunnar 3, Tjörvi 3, Kári 2, Andri 2, Stefán 1.

Birkir stóð vaktina  í markinu og varði yfir 20 bolta.

Næsti leikur er gegn FH og það þarf ekki að segja Haukamönnum að mæta á þennan leik. FH er 2-0 yfir. Leikurinn er að Ásvöllum næstkomandi fimmtudag.


Sigur gegn Val í kvöld + myndband

Góður sigur vannst í kvöld gegn Valsmönnum. Valsmenn byrjuðu leikinn betur og komust í 3-0. Við ætluðum ekki að láta þá komast of langt frá okkur og skelltum í lás í vörninni og jöfnuðum leikinn 5-5 og vorum svo yfir í hálfleik 14-9. Í seinni hálfleik náðum við mest 7 marka forskoti en þá slökuðum við á klónni og þeir komust inn í leikinn aftur og jöfnuðu leikinn 23-23. Við héldum haus og með góðri markvörslu og varnaleik í lokinn náðum við að klára leikinn 25-23. Hjá Valsmönnum vantaði Baldvin og Ernir. Siggi Eggerts er komin á fætur aftur og Fúsi spilaði allan leikinn hjá þeim. Hjá okkur vantaði Arnar Pétursson og Pétur Pálsson vegna meiðsla.

Næsti leikur er gegn Fram á útivelli. Baráttan um efsta sætið í næstu viku.

Markaskor: Beggi 6, Freyr 4, Gunnar 4, Elli 3, Einar 3, Andri 2, Kári 1, Gísli Jón 1,  og Heimir 1

Hér er svo myndband sem ég setti saman til að peppa hópinn fyrir leikinn. 


Haukar - Valur annað kvöld

getImageÞað verður stórleikur annað kvöld að Ásvöllum þegar Valsmenn sem eru í 2.sæti koma í heimsókn til okkar Haukamanna. Síðasti leikur þessara liða í deildinni fór vægast sagt illa en við gerðum upp á bak og töpuðum með 12 mörkum. Við höfum mætt Valsmönnum 3 sinnum í vetur og unnið 2 og tapað einum. Unnum þá í meistarar meistarana og í undanúrslitum deildarbikarsins. Þetta er lykilleikur í baráttunni um að halda sér í toppbaráttunni.

Haukamenn mætum og styðjum okkar menn til sigurs. 

Áfram Haukar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband